Bloggsvæði Steinu
09.11.2006 17:12:54 / steina78

Bíddu var ég með blogg??

Góðan dagin allir, jú, ég var víst með blogg hér fyrir ári eða svo. En jújú, nú er maður komin á fullt og 22 kíló fokin. Ég lagði út í sumarið með það að takmarki að halda mér við og falla ekki í sömu spor og áður og viti menn það tókst. Þetta er semsagt ekki eins og með Herbalife-ið t.d. að maður þyngist tvöfalt meira þegar maður hættir. Ég er að fara í vigtun á eftir og sjáum þá til hvernig vikan hefur verið. Af fjölskyldulífinu er allt gott að frétta, að vísu hefur verið hér hlaupabóla í gangi. Victoría byrjaði og fékk alltof mikið af bólum en hún var rosalega dugleg. Svo liðu og biðu ca tvær vikur og ég hélt að Finnur litli hefði sloppið en neibb, komin með hlaupabóluna og nánast bara á bleijusvæðið og í andliti. OMG hvað það er miklu erfiðara að vera með veikt karlkyns barn. Segi nú svona en ég held að við vitum allar hvernig kallarnir verða þegar þeir verða veikir, ehaggi. Hvað gerir maður við gullfisk í sykursjokki??? Veit ekki, en gullfiskurinn á heimilinu er búin að vera í sjokki eftir að litli guttinn á heimilinu tók ameríska kleinuhringinn með bleika glassúrnum hennar systur sinnar og dembdi honum í fiskabúrið!!! Semsagt komin tími á að setja allt uppí meiri hæð í hillunum. Hurru, nú reynir maður bara að koma þessu bloggi í gang aftur og vonandi fylgist þið með bæjó, spæjó

» 7 hafa sagt sína skoðun

19.06.2006 08:34:53 / steina78

Dóttirinn orðin 5 ára

Halló allir saman, já nú er Victoría mín orðin fimm ára!!!  Voða er þetta stórt mál hjá minni litlu, maður fer með hana í búðina og hún segir við hvern mann "ég er sko fimm" og sýnir fimm putta, rosa stolt.  Afmælið var haldið í gær, 18. júní, prinsessukaka a la mamma og allt sko.  Verð bara að skella inn mynd af henni hérna einhvern daginn. 

Það hefur svo oft verið talað um á DDV fundum að barnaafmæli séu svo erfið því maður borði yfir sig af kökum.  Ég átti ekki við þennan vanda að stríða, hins vegar þá borðaði ég varla neitt!  Það er einhvern veginn þannig þegar ég er að baka að ég borða ekkert á meðan, missi hálfpartinn bara matarlistina, flott en það kemur niður á manni seinna um kvöldið þegar veislan er búin og maður fær að setjast aðeins niður ... mallakúturinn SVANGUR!!

En afmælið gekk vel, allir krakkarnir fengu sápukúlur þegar búið var að fá sér kökusneið og það var bara farið út að blása sápukúlur, voða stuð:haha:

Nú verður mæling í DDV einu sinni í mánuði inni á Akureyri fyrir þá sem koma langt að.  Fyrsta mæling er núna á miðvikudaginn og kemst maður ekki á hana, önnur mæling er akkúrat á þeim tíma sem ég verð á Lanzarote .... oh, get ekki beðið eftir að komast úr þessari rigningu!!!!

Hurru, ég er hætt að bulla og farin að vinna!!!

Bæjó spæjó


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.06.2006 23:40:04 / steina78

20 kílóa múrinn er fallinn!!!

Já mikið var.... ég náði þessu loksins, nú eru farin 20,4 kíló (gat ekki tæpara verið) en samt sem áður þá er ég komin yfir þann hjallann og til að verðlauna mig allsvakalega og familiuna í leiðinni þá erum við á leiðinni til Lanzarote núna í júlí:haha:  Við förum þann 4. júlí og verðum í tvær vikur á æðislegu hóteli þar sem allt snýst um krakkana og bara hafa það gott ... aldrei að vita nema maður smelli í eitt stykki bikiní og kannski smá slæðu til að kovera það sem eftir er;)

Ég veit að ég er voða löt að skrifa hingað inn ... þetta kemur allt saman með kalda.  Nú er ég búin í prófunum, náði öllum en samt bera einkunnir á sér að vinnuálagið er meira en áður:S

En allt í góðu samt.  Emma vinkona var að eignast lítinn englabossa, fór að heimsækja þau mæðgin og Bjarka uppá sjúkrahús núna áðan.  Hann er algjör prins, ég fékk að halda á honum í smá stund en hann vildi bara fá brjóstið hennar mömmu sinnar og ekkert annað, alveg eins og það á að vera.  Það er bara eitthvað svo yndislegt að sjá nýbakaða móður með barnið á brjósti ... þetta er bara alveg ólýsanlegt.  En öllum líður vel og ég get ekki beðið eftir að fara aftur í heimsókn:$


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.05.2006 10:04:27 / steina78

Nú gengur sko vel!

Jæja, sælar aftur, hurru, það gengur bara svona vel að koma sér í gang eftir páskafríið.  Ég fór í vigtun á fimmtudaginn og þá vorum farin heil 1,7 kíló á einni viku!!!  Nú vantar mig bara 300 grömm í 20 kílóa markmiðið og það skal sko takast.  Kemst víst ekki í vigtun næsta fimmtudag þar sem ég þarf að fara á fund í Reykjavík!! 

Nú er maður á fullu í prófum, fékk ælupestina í gær og gat ekkert lesið undir próf sem er á morgun:|  það broslega við ælupestina er það að mig drullulangar á vigtina hjá henni Þórhildi núna:lol:

Jæja, ætla að sökkva mér í bækurnar, heyrusmt síðar


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.04.2006 16:40:16 / steina78

Bara vesen á bloggi

Sælar,

já ég hef bara ekkert verið í sambandi lengi, er búin að vera á fullu í vinnunni og svo eru að byrja próf!! Ég fór í mína fyrstu vigtun eftir páska á fimmtudaginn var og var þá búin að bæta á mig 1,1 kílói:(  Veit sko alveg uppá mig skömmina, nú er bara að byrja á fullu aftur.  Ég fór út að labba í dag og hitti þá lögreglustjórann okkar hér í bæ og vá hvað hann lítur vel út.  Þetta hefur alltaf verið svona ekta löggukall eins og maður sér í myndunum með sæmilega bumbu og allt .... hann lítur ekkert smá vel út í dag, er búin að fylgja konunni sinni í þessu, hún ætlaði að missa 20 kíló og hann sagðist geta misst 25 ef hún gæti misst 20.  Kella sagði honum bara að sýna sér það í verki og voula!!! Kallinn búin að standa sig svona líka vel, bravó fyrir honum og henni og bara öllum sem taka sig á.  Svo hitti í Dísu frænku í Hlíðó, hún er búin að missa heil 10 kíló og bara lítur glæsilega út.  Að ég tali nú ekki um Rúnu systur, nú fer ég alltaf til hennar þegar hún kemur heim úr reisu að máta föt, og viti menn, kápan sem ég gaf henni í jólagjöf er orðin allt of stór og ég passa í hana núna .... hún er sko medium og úr Zöru!!!! Æðislegt, og ef þetta er ekki búst til að halda áfram þá veit ég ekki hvað!

Til hamingju allir með árangurinn og þið sem ekki eruð að gera eitthvað en viljið gera eitthvað í málunum þá er Danski að virka, ekkert bull!

Takk fyrir komuna og eigðu bara súper góðan dag:D


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.04.2006 12:46:23 / steina78

Verður vigtun eða ekki?

Vá, langt síðan ég skrifaði síðast!!! Er bara búin að vera á bölvuðu flakki, þá til Reykjavíkur og mikið voðalega er gott að koma heim þar sem ekki eru umferðarljós!!! Hehe, er ekkert voðalega þolinmóð:D

Nú er alveg vitlaust veður á Króknum og ég er ekki viss um að vigtun verður í kvöld, sjáum til hvort nýjar tölur koma í dag, ef svo er þá held ég að þær verði uppávið, veit samt ekki sjáum til.  En hurru, var að reyna að setja inn nýjar myndir og myndasíðan mín er bara horfinn, greinilega langt síðan ég loggaði mig þar inni, en þetta kemur einhverntímann.

Fékk mér lifur í gær!!! ojbjakk segi ég nú bara, ég á voða erfitt með að éta þetta, var með gæsahúð allan tímann.  Það er kannski það sem hjálpar húðinni að draga sig saman, þ.e. að vera með gæsahúð svona lengi frekar en að lifrin búin yfir þessum eiginleika8|  Anyhú, þetta er hreinasti viðbjóður!!

Læt kannski heyra í mér í kvöld;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.03.2006 08:16:38 / steina78

Jæja, ein vigtunin enn

Já, nú nálgast maður bara 20 kíló í mínus, fór nefnilega eitt kíló af í gær sem þýðir 19,2 kíló farin8) Vá, þetta er bara geggjað.  Hurru, nú er hljómsveitin hans Sorins að fara aftur með okkur kellurnar á Hótel Nordica og ég er búin að kaupa mér soldið mikið dekur hjá Fyrir og eftir, hlakka mikið til.  Verð að fara í einhverskonar sogæðanudd til að koma löppunum í gang og svo allskonar nudd og meðferðir til að styrkja húðina.  Ákvað að verðlauna mig með þessum þætti því maður þarf hvorteðer að kaupa ný föt þar sem þau gömlu eru orðin of stór:lol:

» 5 hafa sagt sína skoðun

23.03.2006 09:22:32 / steina78

Vantar nýjar buxur

Já, hehe, svarta buxnaveldið er að líða undir lok:D  Var að fara í fataskápinn og tók út allar "of stóru" svörtu buxurnar og vá hvað þær voru margar:!:  Bara gaman, en nú er málið að finna öðruvísi buxur, hvert á ég að fara?  Hvar fæ ég flottar gallabuxur og góða þjónustu? 

Hurru, dóttir mín er alveg á fullu núna í "feita" tímabili.  "Ég vil ekki fara í dúnúlpuna því hún er svo feit", þetta er feitt og hitt og bara allt.  Ég held að þetta sé einhver umræða hjá krökkunum í leikskólanum og verður maður að fylgjast með þessu.  Mér fannst hún samt svolítið fyndin um daginn þegar hún kom til mín og sagði að henni fyndist rassinn á mömmu voða flottur en hann færi soldið stór!!! Hehe, hún var víst búin að segja pabba sínum þetta fyrst og hann sagði henni að gjöra svo vel og segja þetta ekki við mömmu sína en hún lét vaða.  Ég sagði henni bara að það væri alveg satt hjá henni en rassinn á mömmu færi minnkandi.  En í allri alvöru þá finnst mér verða að fylgjast með þessu.  Ég sagði henni um daginn að svona segir maður ekki við nokkurn mann því þetta særir mann.  Hún skildi það nú ekki alveg, fannst bara að maður ætti að segja satt.  Getur verið soldið erfitt að útskýra svona lagað fyrir 4ra ára stelpu.

Allavega, vigtun í kvöld, gleymdi víst að láta vita af síðustu vigtun en þá fór ég upp um 300 gr:frown:

Skrifa aftur í kvöld,

bæjóspæjó


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.03.2006 08:21:55 / steina78

Ef einhverntíman voru fréttir þá er það núna!!

Já, heldur betur, fór í vigtun í gær og gat aðeins vonað að ég væri búin að losa mig við þetta 1,5 kíló sem ég bætti á mig í síðustu viku ... og viti menn HEIL 2,8 KÍLÓ FARIN:haha:

Ég er bara alveg í skýjunum, finnst þetta heldur mikið en vá hvað ég er alveg uppi í skýjunum.  Og fallega talan mín núna er 87.9, vá hvað það er langt síðan ég hef séð þessa tölu!

Eitt enn, ég er farin að halda að fataskápurinn sé farin að framleiða svartar buxur:$  Ég fann líklega tvennar nýjar buxur inní skáð og aðrar buxurnar barasta alltof stórar8|  Hinar buxurnar (enn með verðmiðanum á) passa líka svona vel.

Bæjó þið öll og gaman að fá ykkur í heimsókn,

Ein alveg langt uppí skýjunum.


» 4 hafa sagt sína skoðun

03.03.2006 06:43:53 / steina78

Skamm Skamm Skamm

Jæja, vigtun í gær, ég ætla ekkert að vera með afsakanir, +1,5 kíló takk fyrir takk ..... það er sko uppávið:evil:  En, sökin er mín, búin að vera alltof "góð" við sjálfa mig.  Ég er svo skömmustuleg að ég nenni varla að skrifa hérna á bloggið.  Jæja, farin út að hlaupa, drekka sítrónute, fara í ræktina, fara í strada, sogæðanudd, synda, út að labba .... bara allt til að ná þessu eina og hálfa kílói aftur niður.  Nei, allt í góðu, ég er bara voða svekkt yfir því að hafa loksins fengið að sjá töluna 8 fremst á vigtinni fyrir tveim vikum .... og hvað geri ég?  Held upp á það með því að borða það sem ég vil ... nú er niðurstaðan komin og alveg kýrskýr!  Ef ég fer aftur í sama horfið þá held ég bara áfram að þyngjast! 

ohhh, ég er alltof "down" til að skrifa meira.  Gangi ykkur hinum vel:cry:


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.02.2006 20:43:52 / steina78

Nýr tugur takk fyrir takk

Jæja, skutlaðist á vigtina í dag og viti menn, bara mínus 1,9 kíló á síðastliðnum tveim vikum sem þýðir 17,2 kíló farin og daradarararadadadaaaa nýr tugur!!!! Víhí, 89,2 kíló:D I´m so happy, happy, happy:haha:  Bara gaman núna sko, en hvar er helv... tikkerinn, eitthvað bil núna á þessu interneti.

Hurru, fór aftur inní fataskápinn og viti menn, enn aðrar svartar buxur sem bara smellpössuðu ... og aldrei notaðar áður!  Nú glotta þær sem þekkja mig, bara búin að vera í sömu svörtu buxunum forever!! og alltaf til nýjar inní skáp ... ég þarf ekki einusinni að fara útí búð til að kaupa nýjar buxur;) En nú er málið, hvað á ég að gefa sjálfri mér í 15 kíló gjöf????? Nýjar buxur ... you think?:$

Ég fór á djammið síðustu helgi með Kristínu og Möggu vinkona, rosa stuð og vitiði bara hvað .... sokkabuxurnar orðnar of stórar híhíhíhíhi, ég hef bara alltaf keypt 44-46 til að vera alveg sjúr og nú eru þær bara farnar að síga niður og ég reif þær ekki þegar ég var að klæða mig í þær .... nota bene ... klæða mig ... ekki troða mér í þær:haha:

Nú ætla ég að hringja í Kittý frænku, ekki búin að heyra í henni lengi.  Seejú


» 5 hafa sagt sína skoðun

09.02.2006 08:21:47 / steina78

Vinna, vinna, vinna

Jæja, ekki mikill tími í að blogga þessa dagana.  Ég er á fullu í nýju vinnunni, nóg að gera og margt að læra, þeir sem ekki vita þá er ég nýbyrjuð sem skrifstofustjórin hjá Öldunni stéttarfélagi.  Svo þykist maður nú vera í fjarnámi og ekki er minna að gera þar. 

Ég fór með litla kallinn minn í ungbarnasund á þriðjudaginn, rosa duglegur að kafa og busla með höndunum.  Finnst greinilega æðislega gaman í sundi.  Svo er nýjasti svipurinn bara æðislegur, krumpar sig saman í andlitinu og blæs í gegnum nefið, voða gaman.  Svo er orkuátak hjá Victoríu, hún fór í klippingu á þriðjudaginn og átti að fá að launum súkkulaðibita frá hárgreiðslukonunni (Þórdís frænka) og mín sagði bara nei takk, það er ekki nammidagur og ég vil ekki fá mínusstig í bókina!  Bara 4ra ára gellan!  Svo gaf pabbi henni coco puffs í morgunmat og hún líklega skammaðist yfir því að fá nammi í morgunmat!  Ég er bara stolt af minni, ég hefði bara svolgrað þessu í mig þegar ég var á hennar aldri:S

DDV-lega gengur allt vel, fólk farið að taka vel eftir breytingunni, bara gaman.

Takk fyrir að kíkja í heimsókn

See ya:haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.02.2006 21:24:06 / steina78

Já takk já takk!

Hurru, bara 15,3 kíló farin á 23 vikum (með 4 vikum í jólafrí!)  Ég er alveg í skýjunum akkúrat núna, nú erum við sko að syngja!  Það var semsagt vigtun í dag á króknum og bara rosalega gaman að sjá hvað margir eru farnir að mæta og standa sig vel.

Annað mál, ég fór til London í hittifyrra og keypti tvennar buxur, það var svo heitt inní búðinni að ég nennti ekki að máta og keypti bara buxur sem mér sýndist passa8|  Viti menn, pössuðu ekki og hafa því verið inní skáp allan þennan tíma ..... þangað til í gær:D  Barasta smellpössuðu, ég trítlaði líka hæstánægð inní vinnu og allir bara "bíddu, hvað var í kaffinu þínu í morgun?"  Svo frábær tilfinning að passa bara í fötin og ekkert alveg að springa.  Svo fann ég líka gömlu buxurnar sem ég notaði þegar ég byrjaði í DDV, huuuggggeeeee buxur.  Er að spá í að máta þær og taka mynd fyrir og eftir 15 kílóin!!!

Nú er Rúna systir að koma, ég ætla nefnilega að vaxa lappirnar ... alltaf gaman að fá að pína litlu systur aðeins, svo kitlar hana soldið rosalega þannig að það gerir processinn bara mun skemmtilegri:haha:

Snakkast!


» 7 hafa sagt sína skoðun

25.01.2006 11:43:12 / steina78

Grein sem birtist á www.skagafjordur.com

Híhíhí, varð að setja þessa grein hérna inn, hún birtist á þeim ágæta vef www.skagafjordur.com þar sem er alltaf eitthvað skemmtilegt um krókinn:

Eru Skagfirðingar að hverfa?

Það hefur eitthvað breyst í samfélagi okkar Skagfirðinga að undanförnu, ef grannt er skoðað hafa Skagfirðingar margir hverjir minnkað all verulega á nokkrum mánuðum og samt er aðaláthátíðamánuðurinn nýafstaðinn.  Grænmetis- og ávaxtaborðin í Hlíðarkaup og Skagfirðingabúð eru að morgni sneisafulla af allskyns hollustu en ef maður kemur um sexleytið er allt tómt. Afgreiðslufólkið svarar hissa og afsakandi að "...því miður hafi bara allt klárast yfir daginn, það sé bara rosaleg aukning í sölu á þessu."

- Hvað er í gangi?

Jú, því er fljótsvarað. Danski viktarkúrinn er í gangi. Danski viktarkúrinn er valdur að því að Skagfirðingar minnkuðu um nær 400 kg. á síðasta ári, og hann er einnig valdur að því að fyrstu tvær vikurnar í janúar minnkuðu Skagfirðingar um nær 100 kg - að minnsta kosti þeir Skagfirðingar sem eru á kúrnum.

Þetta er gott, alveg frábært sjálfsagt bara eitt það besta sem hefur hent okkur lengi. Nú eru fleiri tugir skagfirskra ísskápa fullir af ávöxtum og grænmeti, sami fjöldi heimila er líklega án kex og súkkulaðis.

Við erum það sem við borðum segir ofurnæringarfræðingurinn á Stöð tvö, hún yrði líklega ekki lítið hissa að skoða í Skagfirska skápa. Algengt er að fólk barmi sér yfir því að erfitt sé að fá börnin til að borða grænmeti, það reynist líklega minna mál þegar ekkert annað er til að snarla en gúrkur og gulrætur. Af því læra börnin sem fyrir þeim er haft og verður maður því að álykta að margra heimila bíði betri tíð, því einhver áhrif hlýtur það að hafa á barn að sjá foreldri sitt,  eða foreldra, hesthúsa frá 600 grömmum upp í tvö kíló af grænmeti á dag.

Bara snilld, krókurinn rúlar sko pottþétt8)


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.01.2006 21:30:04 / steina78

Jibbí jibbí

Vááá hvað ég er glöð, það fóru sko heil 1,3 kíló á síðustu tveimur vikum!!  og það sem meira er það fóru heil 90 kíló af króksbúum á þessum tveimur vikum og enn eru fleiri að byrja á DDV!  Bara glæsilegt.

Verð að fara að læra, læt heyra meira frá mér von bráðar8)


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3